Spurt og svarað
Svör við algengum spurningum vegna breytinganna
Spurt og svarað
Yfirfærsla ökutækjatrygginga Verna til Varðar
Verna hætt að bjóða upp á tryggingar í lok janúar 2026 og en allar ökutækjatryggingar félagsins fluttust til Varðar 1. febrúar.
Vörður hefur verið vátryggjandi Verna frá 1. október, auk þess að sjá um tjónaþjónustu fyrir félagið. Í lok janúar 2026 færðust ökutækjatryggingarnar viðskiptavina Verna sjálfkrafa til Varðar 1. febrúa. Þú þarft ekkert að gera – verndin helst óbreytt og á sambærilegum eða betri kjörum.
Hvernig er greiðslum háttað eftir yfirfærsluna?
Eftir 1. febrúar munu reikningar fyrir ökutækjatryggingar þínar berast frá Verði í stað Verna.
Sjálfvalin greiðsluleið er mánaðarleg greiðsla í netbanka. Á Mínum síðum Varðar getur þú valið um aðrar greiðsluleiðir.
Ef þú ert nú þegar í viðskiptum við Vörð, þá munu ökutækjatryggingar þínar fylgja sömu greiðsluleið og núverandi tryggingar hjá Verði. Á Mínum síðum getur þú valið um aðrar greiðsluleiðir.
Hvaða áhrif hefur breytingin á viðskiptavini?
Verna hætti að bjóða upp á tryggingar í lok janúar 2026 og þá færðust tryggingarnar þínar sjálfkrafa til Varðar.
Þú þarft ekkert að gera – verndin helst óbreytt á sambærilegum eða betri kjörum.
Á Mínum síðum Varðar finnur þú nú allar upplýsingar um þínar tryggingar, kjör og reikninga á einum stað.
Þarf ég að gera eitthvað vegna breytinganna?
Nei, þú þarft ekki að gera neitt. Tryggingarnar þínar fluttust sjálfkrafa yfir til Varðar 1. febrúar 2026.
Tryggingavernd þín helst einnig óbreytt og á sambærilegum eða betri kjörum.
Heldur Vörður áfram að nota ökuskor til að ákvarða kjör?
Nei, þar sem Vörður notar ekki ökurita verður ökuskor í Verna-appinu ekki lengur virkt og hefur því ekki áhrif á verð ökutækjatrygginga þinna.
Iðgjöld Varðar ráðast af nokkrum þáttum. Ef þú ert með fleiri tryggingar hjá Verði getur það til dæmis haft áhrif til lækkunar á iðgjöldum.
Nei, skilmálar haldast óbreyttir. Þú þarft því ekki að hafa neinar áhyggjur af samningnum þínum. Ef munur er á skilmálum Varðar og Verna gildir sú tryggingavernd sem er betri.
Breytast skilmálar ökutækjatryggingarinnar við yfirfærsluna?
Hvað gerist ef ég er nú þegar með opið tjónamál hjá Verna?
Ef tjónið varð fyrir 1. október 2025 þá sér fyrrum vátryggjandi Verna, TM, um að veita allar frekari upplýsingar og lýkur því máli að fullu.
Ef tjónið varð 1. óktóber 2025 eða síðar þá sér Vörður um alla upplýsingagjöf og úrvinnslu málsins..
Email: verna@verna.is
Tel: +354-449-7700
© 2025. All rights reserved.
Verna MGA ehf.
Kt. 610421-0830


